pallih

pallih@gmail.com     twitter.com/pallih    flic.kr/pallih
~ Tuesday, June 30 ~
Permalink
Mikilvægasti þátturinn í að svo megi verða er að út úr búi Landsbankans komi það upp í kröfurnar sem ráð er fyrir gert. Það sem gæti sett strik í reikninginn er annars vegar að íslenskir dómstólar mundu telja að forgangur sá sem innstæðum var veittur með neyðarlögunum stæðist ekki gagnvart stjórnarskrá. Fyrir liggur álit ríkislögmanns, sbr. ofangreinda umfjöllun um annan þátt í álitsgerð hans, um að neyðarlögin standist stjórnarskrá að þessu leyti.