pallih

pallih@gmail.com     twitter.com/pallih    flic.kr/pallih
~ Thursday, July 2 ~
Permalink
Ég fór í dag inn þar sem áður voru skrifstofur Kaupfélags Héraðsbúa. Það eru nokkur ár síðan ég kom seinast þangað upp. Ég hef samt farið þangað reglulega alla mína ævi, með mömmu upp á skrifstofu, upp stóra, breiða stigann, framhjá listaverkinu og styttunni að móttökuborðinu þar sem yfirleitt beið einhver. Nema í dag beið enginn þar. Í þeim hluta sem áður tilheyrði KHB/Malarvinnslunni/Járnvörudeildinni var aðeins rödd Björns Ágústssonar sem kallaði “Viljið þið ekki byrja hérna niðri strákar?” Þar stóð hann í stóru auðu rými utan um hundruðu tómra skjalamappa.