Þróun leiguverðs - þjóðfélagið í tölum
Í framhaldi af fyrirspurn Jakobs Bjarnar á vef Datamarket.com um þróun leiguverðs kíkti ég aðeins á það.
Á vef Neytendasamtakanna má finna fjórar kannanir á leiguverði frá því desember 2008 fram í febrúar 2010. Meðalverð var eins og hér er sýnt.
Í vísitölu neysluverðs, sem Hagstofan mælir, er undirvísitalan Greidd húsaleiga sem mælir verðbreytingar á leigumarkaði (og gildir 10% af liðnum Húsnæði í vísitölu neysluverðs). Frá árinu 1998 hefur hún þróast svona (í janúar hvert ár):
Heimild: Hagstofan
Hlutfallsleg hækkun á milli ára (mæling í janúar hvert ár) hefur verið svona:
Mestar hækkanir voru á milli 2000-2001(17,79%) og 2008-2009 (26,4%).
Heimild: Hagstofan